Árdegismessa er að sjálfsögðu í dymbilvikunni líka og er hún á sama tíma kl. 8 í Hallgrímskirkju. Frábært tækifæri til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Sr. Birgir Ásgeirsson leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu.
Verið hjartanlega velkomin.
Þriðjudaginn 11. apríl kl. 10.30 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Sr. Birgir Ásgeirsson leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina.
Verið velkomin.
Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir notalega kortérs bænastund í hádeginu á mánudögum kl. 12.15 12.30. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey.
Verið velkomin.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Björn Steinar Sólbergsson er organisti. Umsjón með barnastarfi hafa Rósa Hrönn Árnadóttir, Sunna Karen Einarsdóttir og Guðjón Andri Rabbevåg Reynisson. Kaffisopi eftir messu.
Verið...
Fimmtudaginn 6. apríl kl. 12 er kyrrðarstund í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Birgir Ásgeirsson leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.
Playgroup in the crypt for parents and their children every wednesday morning at 10 am-12 pm. Everybody is welcome.
Miðvikudaginn 5. apríl kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu.
Verið hjartanlega velkomin.
Hvað eigum við að gera með skelfilega texta í Biblíunni? Í einum þeirra er föður fyrirskipað að deyða drenginn sinn. Er hægt að verða við slíku boði. Er hægt að trúa á duttlungafullan Guð sem rífur gleðigjafana úr fangi fólks. Í prédikun 2. apríl ræddi Sigurður Árni Þórðarson um skelfingaraðstæður feðganna Abrahams og Ísaks. Prédikunin er að baki...