Messa og barnastarf
Annar sunnudagur eftir páska - Sunnudaginn 5. maí kl. 11
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Nemendur í Listaháskóla Íslands og Tónskóla þjóðkirkjunnar: Fredrik Schjerve tenór, Símon Karl...
Orgel Matinée - Hádegistónleikar
Laugardaginn 4. maí kl. 12
Björn Steinar Sólbergsson, organisti Hallgrímskirkju leikur verk eftir Johann Sebastian Bach og Jean-François Dandrieu.
Í upphafi tónleikanna verður stutt helgistund í umsjá dr. Sigurðar Árna Þórðarsonar.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Hérna fyrir...
Kyrrðarstund
Fimmtudaginn 2. maí kl. 12
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Eftir kyrrðarstundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar.
Verið hjartanlega velkomin.
Foreldramorgnar í kórkjallara á miðvikudögum kl. 10 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krílin og krúttin.
Umsjón hafa Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.
Árdegismessan fellur niður á baráttudegi verkalýðsins miðvikudaginn 1. maí.
Árdegismessan verður á sínum stað næsta miðvikudag 8. maí og verður þá í kórkjallaranum.
Krílasálmar á morgun, þriðjudaginn 30. apríl kl. 11:30 og verða út maí. Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir börn á aldrinum 3-18 mánaða og foreldra þeirra, þar sem tónlist, sálmar, þjóðlög og barnavísur eru notuð til að styrkja tengslamyndun og örva þroska barnanna. Það er sungið fyrir þau og spilað á hin ýmsu hljóðfæri, þeim vaggað, dansað...
Fyrirbænamessa er morgun, þriðjudaginn 30. apríl í kórkjallaranum. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina.
Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina.
Verið velkomin.