Á mánudögum eru vanalega bænastundir sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir í hádeginu kl. 12.15 12.30. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey.
Verið hjartanlega velkomin til bænahalds.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Eldri félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Umsjón með barnastarfinu hefur Inga Harðardóttir. Kaffisopi eftir messu.
Verið hjartanlega velkomin til messu.
Lexía: Jes 43.16-19
Svo segir Drottinn sem lagði...
Á fimmtudögum er hálftíma kyrrðarstund sem prestar kirkjunnar leiða og organistar spila. Dr. Sigurður Árni Þórðarson flytur hugvekju og bæn. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið. Eftir stundina verður hægt að kaupa súpu á vægu verði. Allir hjartanlega velkomnir.
Boðskapur fyrir rappið á Austurvelli. Góður stjórnandi er sá sem engin svik eru í. Lífið er hæsta gjaldið. Trúmennskan er ekki innflutt, ekki útflutt í skjólin heldur, hún er heimaræktuð. Prédikun í Hallgrímskirkju 10. apríl, 2016 er að baki báðum þessum smellum, sigurdurarni.is og tru.is
Góð leið til þess að byrja daginn: Á miðvikudaginn kl. 8 er árdegismessa þar sem dr. Sigurður Árni Þórðarson og messuþjónar þjóna í sameiningu. Morgunmatur og kaffi eftir messu.
Verið hjartanlega velkomin.
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir og Mjöll Þórarinsdóttir sjá saman um samveruna.
Verið hjartanlega velkomin.
Á morgun, þriðjudaginn 12. apríl mun dr. Sigurður Árni Þórðarson leiða fyrirbænamessuna í kórkjallaranum kl. 10.30 11.00. Í messunni er beðið fyrir líðandi stund í góðu samfélagi. Allir velkomir.
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja og organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarfið er í umsjá Ingu Harðardóttur. Kaffisopi eftir messu.
Eftir messu, kl. 12.30 hefst aðalsafnaðarfundur safnaðarins í suðursal...
Á morgun, 7. apríl kl. 12 er kyrrðarstund. Dr. Sigurður Árni Þórðarson flytur íhugun dagsins og Hörður Áskelsson leikur á orgelið. Eftir stundina verður hægt að kaupa súpu og brauð á vægu verði í suðursalnum.
Verið hjartanlega velkomin.