Fréttir: Desember 2020

Öskudagur í Hallgrímskirkju

24.02.2020
    Mikið er um dýrðir við upphaf föstunnar. Öskudagurinn markar upphaf langaföstu sem er tímabil kirkjuársins sem varir í 40 daga að kyrruviku. Undirbúningur fyrir páskana. Því verður fagnað á morgun með lifandi hætti. Kl. 8: Öskudagsmessa og afmæli. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma....

Hádegisbæn

23.02.2020
Á mánudögum kl. 12:15 leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund í hádeginu. Stundin er hægra megin við altarið hjá myndinni af Maríu. Allir velkomnir.

Ensk messa sunnudaginn 23. febrúar kl. 14 / English service Sunday 23rd February at 2pm

21.02.2020
English below: Ensk messa kl. 14 sunnudaginn 23. febrúar. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Kaffisopi eftir messu. Verið velkomin. ---------------- English service with holy communion at 2 pm, February 23rd. Pastor: Rev. Bjarni Þór Bjarnason. Organist is Björn Steinar...

Framundan...

21.02.2020
Fréttabréf Hallgrímskirkju dagana 20. – 26. febrúar Vers vikunnar: Jesús tók þá tólf til sín og sagði við þá: „Nú förum við upp til Jerúsalem og mun allt það koma fram sem spámennirnir hafa skrifað um Mannssoninn. Lúk 18.31 Kæru vinir og viðtakendur. Efni...

Kvöldkirkjan kallar

19.02.2020
Fimmtudagskvöldið 20. febrúar verður kvöldkirkja í Hallgrímskirkju. Kertaljós um alla kirkju lýsa í rökkrinu. Tónlist, þögn, íhugun og kyrrð eru flétta kvöldkirkjunnar. Ragnar Emilsson spilar á gítar og Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Kristný Rós Gústafsdóttir og Grétar Einarsson íhuga. Kvöldkirkja verður frá kl. 19 til 21:30 og er samstarfsverkefni...

Kyrrðarstund

19.02.2020
Hvern fimmtudag kl. 12 yfir vetrartímann er ljúf kyrrðarstund í hádeginu. Fimmudaginn 20. febrúar kl. 12 mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir hugleiða. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið. Allir velkomnir. Eftir kyrrðarstund verður seld súpa og brauð í Suðursal á vægu verði.   

Erna Kristín talar um líkamsvirðingu

18.02.2020
Miðvikudaginn 19. febrúar, kl. 12 mun Erna Kristín Stefánsdóttir tala um heilagleika líkamns, líkamsvirðingu og sjálfsmynd. Erna Kristín er guðfræðingur og talskona fyrir jákvæða líkamsímynd. Hún er höfundur bókarinnar Fullkomlega ófullkomin og stýrir facebooksíðunni Ernuland. Í hádeginu á miðvikudögum, 19. febrúar til 25. mars, verða...

Foreldramorgnar í kórkjallara - allir velkomnir, sérstaklega verkfallsbörn!

18.02.2020
Foreldramorgnar eru í kórkjallaranum alla miðvikudagsmorgna kl. 10 – 12. Kríli, krútt og foreldrar eru hjartanlega velkomin, sérstaklega börnin sem eru heima vegna verkfalls. Heitt á könnunni og með'ðí. Umsjón: Kristný Rós Gústafsdóttir, verkefnastjóri- og djákni og Ragnheiður Bjarnadóttir, tónmenntakennari.

Er þá ekkert heilagt?

18.02.2020
Er þá ekkert heilagt? Hvað er heilagt eða er allt á floti og engin algildi til? Í hádeginu á miðvikudögum, 19. febrúar til 25. mars, verða samverustundir í Norðursal Hallgrímskirkju kl. 12- 12,45. Veitingar eru í boði kirkjunnar og fyrirlesarar tala um það sem þeim er mikilvægt. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Sigurður Árni Þórðarson, prestar...