Fréttir

Foreldramorgnar í kórkjallara

09.01.2018
Á hverjum miðvikudegi eru foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 – 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi. Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.

Lokað vegna útfara

08.01.2018
Í þessari viku er kirkjan er lokuð vegna útfara eftirfarandi daga: Þriðjudaginn lokað: 11:00-14:30 Fimmtudaginn lokað: frá kl. 13:30 Föstudaginn lokað: 12:30-15:30

Árdegismessa

08.01.2018
Á miðvikudagsmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. sr. Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.

Fyrirbænamessa

08.01.2018
Á þriðjudögum kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á morgun mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn - breyttur tími

08.01.2018
Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst nú á nýjum tíma kl. 12.10. Verið hjartanlega velkomin.

Hækkun á miðaverði upp í turn

04.01.2018
Frá og með föstudeginum 5. janúar 2018 mun miðaverð upp í Hallgrímskirkju turn hækka úr 900 kr. í 1000 kr. fyrir fullorðna.    

Fyrsta árdegismessa ársins

02.01.2018
Fyrsta miðvikudag ársins er árdegismessa eins og vanalega kl. 8 í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Morgunmatur og kaffi eftir messu.  Verið velkomin. 

Hátíðarmessa á nýársdag kl. 14

31.12.2017
Hátíðarmessa kl. 14 í Hallgrímskirkju Nýársdagur 1. janúar 2018   Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Messuþjónar aðstoða. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Organisti er Hörður Áskelsson. Verið velkomin til messu á nýju ári.   Messuskránin er í tölvutæku...

Aftansöngur á gamlárskvöld kl. 18 - Útvarpað á Rás 1

29.12.2017
Aftansöngur í Hallgrímskirkju kl. 18 Verið hjartanlega velkomin til kirkju eða við hlustir heima.  Útvarpað er frá Rás 1   Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Elmar Gilbertsson syngur einsöng. Organisti...