Kyrrðarstund
Fimmtudaginn 11. apríl kl. 12
Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir og íhugar útfrá 32. passíusálmi. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Eftir stundina mun Kristinn vera búinn að elda gómsæta súpu og brauð sem seld verða á vægu verði í Suðursalnum.
Verið hjartanlega velkomin!
Hérna fyrir neðan er skráin fyrir stundina...
Foreldramorgnar í kórkjallara á miðvikudögum kl. 10 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krílin og krúttin.
Umsjón hafa Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.
Árdegismessa miðvikudaginn 10. apríl kl. 8
Dr. Sigurður Árni Þórðarson messar ásamt messuþjónum. Morgunmatur eftir messu. Kjörin leið til þess að byrja daginn snemma!
Allir hjartanlega velkomnir.
Krílasálmar BB
Krílasálmar á morgun, þriðjudaginn 2. apríl kl. 11:30 og verða út maí. Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir börn á aldrinum 3-18 mánaða og foreldra þeirra, þar sem tónlist, sálmar, þjóðlög og barnavísur eru notuð til að styrkja tengslamyndun og örva þroska barnanna.
Það er sungið fyrir þau og spilað á hin ýmsu hljóðfæri, þeim...
Þriðjudaginn 9. apríl kl. 10.30 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á morgun mun dr. Sigurður Árni Þórðarson leiða stundina.
Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17.
Kaffisopi eftir stundina.
Verið velkomin.
Sunnudaginn 7. apríl kl. 17 í Hallgrímskirkju, munu Eyþór Ingi Jónsson, organisti og Gregorskórinn Cantores Islandiae, flytja Messe pour les paroisses eftir franska barokktónskáldið François Couperin (1668-1733)
Verkið er jafnan álitið eitt allra vandaðasta orgelverk franska barokksins. Cantores Islandiae flytur gregorssöng tengdum...
Messa og barnastarf - föstumessa eldriborgararáðs
Fimmti sunnudagur í föstu - Sunnudagur 7. apríl kl. 11
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttir, Þóreyju Dögg Jónsdóttur, djákna. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organistar eru Björn Steinar Sólbergsson og...