Núna í byrjun september hefst eins og vanalega okkar fasta kirkjustarf. Nóg er um að vera og margt í boði fyrir fjölbreytta aldurshópa en í þessari færslu verður stikklað á stóru varðandi dagskrárliði sem hafa legið í ,,sumardvala".
Fermingarstarf
Fermingarfræðslan er alla miðvikudaga kl. 15 - 16 í kórkjallara kirkjunnar...
Árdegismessa er ávallt kl. 8 á miðvikudögum og sú næsta 7. september. Góð leið til þess að hefja daginn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og messuþjónar þjóna. Sungið, beðið og hlýtt á stutta hugleiðingu í góðu samfélagi. Morgunmatur og kaffi eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.
Á morgun, þriðjudaginn 6. september kl. 10.30 11.00 er fyrirbænamessa með altarisgöngu í kórkjallaranum. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17.
Eftir messuna hefst svo starf eldri borgara eftir gott sumarfrí, Liðug á líkama og sál. Starfið er í...
Hvaða erindi eiga þessir ungu menn, Belgar, við Guðna forseta og presta þjóðarinnar? Eigum við bara að taka úr sambandi öll nútímaviðmið í siðferði og trú? Já, hver er Guð? Þetta voru nokkrar spurningar sem hljómuðu í messunni 4. september. Sigurður Árni talaði um guðsmynd, afstöðu til siðferðis, Biblíunnar og samtíma. Hugleiðingin er að baki...
Sjálf sköpunarsagan liggur til grundvallar sýningu Erlu S. Haraldsdóttur, sem opnar í Hallgrímskirkju næstkomandi sunnudag, þann 4. september klukkan 12.15. Erla nefnir sýninguna Genesis og samanstendur hún af sjö nýjum málverkum sem gerð eru sérstaklega fyrir anddyri kirkjunnar. Sköpunarsagan er þekkt stef í kirkjulistasögunni og gengur Erla inn...
Þessi sunnudagur er 15. sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Mikið um dýrðir í Hallgrímskirkju kl. 11, þar sem vetrarstarfið hefst að nýju með krafti.
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Hörður Áskelsson. Norski kórinn Paulikor frá Osló...