Fréttir: 2016

Liðug á líkama og sál

25.04.2016
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir og Mjöll Þórarinsdóttir sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallaranum

25.04.2016
Á morgun, þriðjudaginn 12. apríl mun dr. Sigurður Árni Þórðarson leiða fyrirbænamessuna í kórkjallaranum kl. 10.30 – 11.00. Í messunni er beðið fyrir líðandi stund í góðu samfélagi. Allir velkomir.

Ensk messa sunnudaginn 24. apríl kl. 14 / English service with holy communion sunday 24. april at 2 pm

21.04.2016
English below: Ensk messa með altarisgöngu í Hallgrímskirkju kl. 14, 24. apríl. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Forsöngvari er Þóra H. Passauer. Kaffisopi eftir messu. Allir velkomnir. Service – with Holy Communion – in Hallgrimskirkja 14. april at 2 pm. Rev. Bjarni Þór...

Messa og barnastarf 24. apríl kl. 11

21.04.2016
Sunnudaginn 24. apríl er messa og barnastarf í Hallgrímskirkju kl 11. Þá er 4. sunnudagur eftir páska (Cantate). Í messunni verður hugleidd sumarkoman, dásemdarverk Drottins, sköpunin og endurnýjung. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða, en hluti af þjónunum eru úr hópi Gídeon félagsins. Félagar...

Skátamessa á Sumardaginn fyrsta kl. 11 - Útvarpsmessa

20.04.2016
Á Sumardaginn fyrsta, 21. apríl er skátamessa í Hallgrímskirkju kl. 11 sem verður einnig útvarpsmessa. Þar munu félagar úr Skátasambandi Reykjavíkur og prestar kirkjunnar þjóna í sameiningu. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjóna fyrir altari og ræðumaður dagsins er Heiður Dögg Sigmarsdóttir. Skátakórinn syngur og stjórnandi er Fjóla Kristín...

Foreldramorgnar í kórkjallaranum

19.04.2016
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Dagskrá: Opið hús. Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Íris Saara Henttinen Karlsdóttir taka vel á móti ykkur.

Árdegismessa

18.04.2016
Góð leið til þess að byrja daginn: Á miðvikudaginn kl. 8 er árdegismessa þar sem sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og messuþjónar þjóna í sameiningu. Morgunmatur og kaffi eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál

18.04.2016
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir og Mjöll Þórarinsdóttir sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa

18.04.2016
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir fyrirbænamessuna í kórkjallaranum á morgun, þriðjudaginn 19. apríl kl. 10.30 – 11.00. Í messunni er beðið fyrir líðandi stund í góðu samfélagi. Allir velkomir.