Kyrrðarstund
Fimmtudaginn 17. október kl. 12
Kyrrð er góð fyrir sál og líkama. Dr. Sigurður Árni Þórðarson hugleiðir og Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið í kyrrðarstundinni. Eftir kyrrðarstund verður seld súpa og brauð á vægu verði í Suðursal.
Allir velkomnir.
Miðvikudagur 16. október kl. 12-12,45 í Norðursal Hallgrímskirkju.
Ragnar Helgi Ólafsson, rithöfundur og myndlistamaður flytur erindið: Bókasafn föður míns.
Léttar veitingar í boði og allir velkomnir.
Í fimm frásögnum miðla framsögumenn reynslu af áföllum, sorg, missi, ást og lífi. Þau ræða um viðbrögð, hvaða innsæi úrvinnsla veitir og...
Foreldramorgnar eru í kórkjallaranum alla miðvikudagsmorgna kl. 10 12. Kríli, krútt og foreldrar eru hjartanlega velkomin!
Umsjón: Kristný Rós Gústafsdóttir, verkefnastjóri- og djákni og Ragnheiður Bjarnadóttir, tónmenntakennari.
Miðvikudaginn 16. október kl. 8 mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir messa ásamt messuþjónum. Tilvalið tækifæri til að byrja daginn snemma í góðu samfélagi. Morgunmatur eftir messu.
Allir hjartanlega velkomnir.
Þriðjudaginn 14. október kl. 10.30 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á morgun mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina.
Verið velkomin.
Umhverfismessa og barnastarf
17. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir og séra Sigurður Árni Þórðarson þjóna fyrir altari.
Dr. Mark MacDonald, biskup frumbyggja í Kanada innan Anglikönsku kirkjunnar prédikar (sjá neðar umfjöllun um kanadíska biskupinn) Messuþjónar...
Næstkomandi sunnudag, 13. október, heldur Peter-Fischer Möller, Hróarskeldubiskup, fyrirlestur í Hallgrímskirkju. Fyrirlesturinn hefst kl. 09:30 í Norðursal og hefur yfirskriftina Græna kirkjan í Danmörku Peter-Fischer Möller hefur gegnt embætti biskups í Hróarskeldu síðan 2008. Hann situr í framkvæmdastjórn kirkjuráðs í Danmörku og er...