Dagana 1. - 31. desember er jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju. Mikið um dýrðir og hér gætir að líta plaggat um hátíðina.
Nánari upplýsingar inn á listvinafelag.is.
Klais orgel Hallgrímskirkju var vígt 13. desember 1992 og hefur sú skemmtilega hefð skapast að halda jólatónleika með orgelinu kringum vígsluafmælisdag orgelsins.
Í ár er boðið upp á jólaorgeltónleika sunnudaginn 16. desember kl. 17 með Láru Bryndísi Eggertsdóttur, organista Hjallakirkju í Kópavogi, en hún er nýflutt aftur heim...
Messa og barnastarf kl. 11 - Þriðji sunnudagur í aðventu 16. desember 2018
Séra Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Karlakór Reykjavíkur syngur og leiðir messusönginn undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar.
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfinu hafa Ragnheiður Bjarnadóttir...
Í dag, 14. desember, eru 73 ár frá því fyrsta skóflustungan var tekin að Hallgrímskirkju. Sá merki viðburður vakti enga athygli og enginn fjölmiðill sendi fulltrúa sinn og því var hvergi greint frá tiltækinu og engin mynd var tekin. En kvenfélag Hallgrímskirkju lét sig það litlu varða og bakaði með gleði upp kapellu og turn stórkirkjunnar....
Kyrrðarstund er á sínum stað fimmtudaginn 13. desember kl. 12. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir og organisti er Hörður Áskelsson.
Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Eftir stundina verða seldir jólasmáréttir gegn vægu verði í Suðursal kirkjunnar.
Verið hjartanlega velkomin.
,,Leitaðu friðar og leggðu stund á hann" Sálmur 34.15
Næstu tvo miðvikudaga 12. og 19. desember kl. 17 - eftir lokun verður boðið til sérstakrar kyrrðarstunda sem einblína á íhugun og bæn í hljóðri kirkjunni. Kirkjugestir eru hvattir til þess að kveikja á kertum á kórtröppunar eða við ljósberann og njóta þess að vera í kyrrðinni fjarri stressi í...
Miðvikudaginn 12. desember kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi.
Allir velkomnir.
Þriðjudaginn 11. desember kl. 10:30 verður fyrirbænamessa í Suðursal kirkjunnar. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir. Kaffisopi eftir stundina.
Allir velkomnir.